Kristín Dýrfjörð

Dagforeldrakerfi á sterum – lausn Sjálfstæðisflokksins

Kristín Dýrfjörð skrifar

Dagforeldrakerfi á sterum – er lausn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á umönnunarbilinu milli fæðingarorlofs og leikskóla. Þeir ætla meira að segja að teygja bilið þar til börn verða 2,5 ára.

Til að útbúa 300 hundruð daggæslupláss í Reykjavík, fyrir börn undir 2,5 ára þarf að gera samning við minnst 30 reynda dagforeldra sem núna eru ekki til. Eins og reglugerðin er núna mega dagforeldrar sem eru að byrja vera með fjögur börn og fimm börn eftir ársreynslu að meðtöldum sínum eigin börnum.

Dagforeldrar geta verið tvö saman og fengið að hafa 10 börn, þau geta verið í eigin húsnæði eða samsvarandi húsnæði utan heimilis. Á slíkri lausn keyrir t.d. Arionbanki, þar sem þeir leggja til húsnæði og aðbúnað sem þeir gera samning við viðkomandi dagforeldra um leigu á og fá í staðinn plássinn. 

Dagforeldrar eru sjálfstæðir atvinnurekendur sem þurfa að uppfylla ýmis skilyrði sem hafa verið sett í lögum og reglugerðum. Þeir þurfa til að fá leyfi að ljúka ýmsum námskeiðum, svo sem um þroska barna og fyrstu hjálp. Þeir verða að vera orðnir 20 ára.

Húsnæði þeirra verða að uppfylla ýmis skilyrði og staðurinn sem börn eru í útivist verður að standast reglugerð um öryggi leikvalla og leiksvæða.

Engin á heimilinu má hafa hlotið refsidóm samkvæmt ákveðnum köflum refsilaga (kynferðisbrot eða ofbeldisbrot gegn einstaklingi undir 18 ára).

Dagforeldrar reka sín eigin fyrirtæki. Þeir þurfa að borga öll gjöld og skatta sjálfir, þeir verða að vera með tryggingar sem ná til barna sem þeir hafa í sinni umsjón.

Sem betur fer getur og á ekki hver sem er að fá leyfi til daggæslu í heimahúsi. En þeir sem það geta fara í gegn um félagsmálanefndir/ráð sinna bæjarfélaga.

Ég öfunda engan af því að starf eitt sem dagforeldri. Að hafa ekki annan fullorðinn að treysta á. Að fá aldrei afleysingar eða kaffitíma. Að þurfa að sinna matseld og frágangi með börnin með sér. Að bera persónulega ábyrgð á því að ef viðkomandi veikist þá er engin afleysing, aldrei. Að heimilið sé alltaf undirlagt.

Það er örugglega skárra að tveir sinni starfinu saman og enn betra að það sé gert í húsnæði sem er ekki heimili viðkomandi.

En daggæsla á vegum dagforeldra er ekki leikskóli og verður ekki leikskóli. Að hafa það sem kosningarloforð að byggja daggæslukerfi á sterum er afturför, metnaðar- og úrræðaleysi. Fyrir utan að koma ljóslega upp um undirliggjandi hugmyndafræði og viðhorf til barna.

 Það er sérstakt að ekkert er fjallað um börnin sem eru í kerfinu eða þeirra rétt til menntunar. Enda sennilega algjört aukatriði.

Annað tengt efni:

Um daggæslukerfið sjálfstæðisflokksins

Um fyrirtækjavæðingu leikskólastigsins, þegar nota á krísur

Og hér er tengill á frásögn af því þegar við auglýstum eftir dagmömmu og afhverju.

Tags:

Sorry, the comment form is closed at this time.

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar, sem fjallar um leikskólastarf