Kristín Dýrfjörð

Sarpur KD

Daggæslukerfið sem bjóða á börnum og foreldrum

Við fórum í heimsókn og fengum að skoða aðstæður. Hún bjó í íbúð með ágætu gluggalausu holi, stofu og tveimur svefnherbergjum. Ég spurði hvar börnin væru, „jú í stofunni og holinu“ sagði hún mér. Ég horfði í kring um mig, á allar Bing og Gröndal postulínsstytturnar og kristallinn í hillum neðarlega í stássstofunni. Ég sá ekki fyrir mér lítil börn að leik þarna. Ég sá myrkvað holið.

Dagforeldrakerfi á sterum – lausn Sjálfstæðisflokksins

Dagforeldrakerfi á sterum – er lausn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á umönnunarbilinu milli fæðingarorlofs og leikskóla. Þeir ætla meira að segja að teygja bilið þar til börn verða 2,5 ára.

Gap á milli leikskóla, foreldra og samfélags

Stór hluti foreldra aðalhlutverk leikskóla vera að sjá til þess að börn fái gæslu í öruggu umhverfi á meðan þeir sinna vinnu sinni. Leikskólakennarar líta hinsvegar fyrst og fremst á leikskólann sem stað þar sem börn þroskast og dafna á, þar sem nám fer fram í gegn um leik og samskipti.

Um vefinn Laupur

Síðunni er ætlað að vera vettvangur fyrir efni sem tengist leikskólastarfi, hugmyndum og þróun þess. Allt efni er sett fram á mína ábyrgð.
Öllum er frjálst að nýta efni sem birt er í mínu nafni, svo framarlega sem heimildar er getið.

Að segja börnum sögur – er hæglæti

Það er stundum gaman að hlusta á sögur af storytel eða öðrum miðlum, en það kemur ekkert í stað þess að vera með barnahóp og segja sögu. Að skapa saman töfrastund. Og það sem er gott við getum flest tileinkað okkur það.

Skjánotkun barna í leikskólum?

Vel menntað starfsfólk sem notar skjái og stafrænan efnivið á skapandi hátt eins og ég hef t.d. víða séð er ekki áhyggjuefni. En ef það eru leikskólar hér sem annarstaðar sem nota þá sem afþreyingu er staðan auðvitað önnur. Sem dæmi um gagnlega og skapandi not hef ég séð víðsjár tengda við Ipada til að rannsaka umhverfið, skoða hluti í náttúrunni svo sem fiskhreistur og æðakerfi plantna.

Mín króna um leikskólamál -Skrapp í viðtal á Samstöðinni

Þann 10. febrúar 2026 skrapp ég í viðtal við Björn Þorláksson á Samstöðinni. Við áttum góðar samræður sem báru okkur langt og vítt, snertum á mörgu sem snýr að leikskólastarfi. Það var gaman að tala við Bjössa og þar hittust við tvö málglöð saman. Ástæða viðtalsins var færsla sem ég birti á fésbók þar sem ég viðraði mínar skoðanir á ýmsu sem er að gerast í leikskólaheiminum.

Hæglæti – hugtök og verkfæri til ígrundunar

Í rannsókn okkar Önnu Magneu (2025) kom fram að fólki fannst það hafa fengið verkfæri til að tala um leikskólastarfið á annan hátt með hugtökunum sem Alison Clark kynnti. Hér ætla ég að fara lauslega yfir hugtökin og tengja við hvernig leikskólafólk getur mögulega nýtt þau í starfi.

Sagan af froskinum – Að fara út af sporinu

Ég kem inn á deild. Þar er svolítil óreiða, eins og stundum verður þegar margt er í gangi í einu. Einhver börn sitja og skoða bækur sum ráfa um rýmið með bækur og leikföng í höndunum. Kennari er inni í opnu rými að skipta á barni á skiptiborði. Annar kennari er með fangið fullt af þvotti og þarf að fara út af deildinni. 

Undur leikskólans

Í leik barna gerist oft meira en við sjáum í fyrstu. Leikur er gluggi sem okkur hefur auðnast þau forréttindi að horfa inn um og kynnast hugarheimi barna.

Leikur er gefandi fyrir börn og fullorðna

Það er eitthvað óljóst og heillandi sem gerist þegar við stöldrum við og leyfum okkur að verða vitni að leik barna. Þegar við höldum aftur af okkur, grípum ekki strax inn í, heldur fylgjumst með því hvernig leikurinn tekur á sig mynd, hvernig hann þróast og umbreytist fyrir augum okkar. Það er eitthvað mest gefandi sem ég geri þegar ég verð vitni að leik barna.

Læst: Hæglæti þrír uppteknir fyrirlestrar

Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.

Læst: Fimm fyrirlestrar um einingakubba (upptökur)

Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.

Einingakubbar og Aðalnámskrá leikskóla

Kristín Dýrfjörð skirfar 9.10 2025 Í flestum leikskólum á Íslandi eru til einingakubbar. Þeir eru dásamlegur efniviður sem er stundum vannýttur. En þeir eru kjörnir til að framfylgja afar mörgum þáttum Aðalnámskrár leikskóla. Aðalnámskrá leikskóla fjallar um bæði um það nám sem á að eiga sér stað í leikskólum sem og starfshætti og ábyrgð leikskólakennara […]

Sköpun, sjálfbærni og líðan í leikskólum: Innsýn frá Íslandi og Slóveníu

Greinin „Art for Well-being: Insights into Early Childhood Education in Slovenia and Iceland“ eftir Petru Štirn Janota og Kristínu Dýrfjörð birtist í Journal of Elementary Education í september 2025. Hún fjallar um hvernig list- og menningarstarf tengist vellíðan í leikskólum og ber saman reynslu og viðhorf leikskólakennara og leikskólakennaranema í Slóveníu og á Íslandi.

Um starfsaðstæður í leikskólum

Greinin dregur upp mynd af kerfi sem stendur á brauðfótum. Starfsskilyrði leikskólakennara eru óviðunandi og hafa áhrif á bæði gæði menntunar og velferð barna. Lausnin felst ekki í því að fjölga starfsfólki heldur í því að halda í og styðja við þá sem þegar eru í starfi – fagfólk sem er undir stöðugu álagi.

Heppin börn fá góða leikskóla – en hvað með hin?

Rannsóknin gefur mikilvæga innsýn í hvernig leikskólar geta annaðhvort stutt við þroska barna – eða hindrað hann. Hún sýnir einnig að jafnvel innan sama leikskóla getur munurinn á deildum verið mikill. Þetta undirstrikar mikilvægi stjórnunar leikskóla sem meðal annars byggist á að tryggja stöðugra nærveru fagfólks og raunverulegs svigrúms í starfi – ekki bara skipulags á pappírum. Gæði leikskóla byggjast ekki á meðaltölum heldur á raunverulegum aðstæðum barna dag frá degi.

Hæglátt leikskólastarf = meiri vellíðan

Víða er dagskipulagið afar þétt og bútað í marga bita, börn og barnahópar fara oft á milli skipulagðra verkefna og tími til að dvelja í djúpum leik virðist jafnvel af skornum skammti. En hvað ef við stöldrum við og gefum okkur rými og tíma til að njóta dagsins í stað þess að flýta okkur?

Læst: Um hæglátt leikskólastarf (upptaka fyrirlestur)

Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.

Kaffiheimsóknir foreldra í leikskóla

Það er ábyrgð þeirra sem starfa í leikskólum að skapa rými fyrir fjölbreytta samvinnu við foreldra og tryggja að það verði áfram hluti af leikskólamenningunni. Það má vera að breyttar aðstæður kalli á einhverskonar endurskoðun á framkvæmd, en samstarf þarf að vera einn lykilþátta. Að lokum langar mig að benda á að það er líka ábyrgð foreldra að vilja vera í samvinnu við leikskóla og forgangsraða tíma til þess

Verkafólk tilfinninga: það sem ekki sést

Kennarar verða sífellt að stjórna og miðla eigin tilfinningum. Tilfinningar eru ekki aðeins hluti af persónulegu lífi þeirra, heldur verða þær órofa hluti af fagmennsku þeirra

Af hverju er menntun leikskólakennara minna metin en annarra kennara?

Til að breyta þessari stöðu þarf samfélagið að endurskoða gildi leikskólamenntunar og fagna því að uppeldi ungra barna er krefjandi og mikilvægt starf sem krefst bæði mikillar þekkingar og ástríðu. Leikskólakennarar eru vissulega umönnunaraðilar – umönnun þeirra byggist á faglegri þekkingu, þeir eru fagfólk sem vinnur að því að leggja grunn að framtíð samfélagsins.

Þess vegna skiptir fagfólkið í leikskólanum máli

Fagfólk í leikskólum vinnur á grundvelli rannsókna og kenninga sem styðja við leik, nám og velferð barna. Þetta er langt frá því að vera einfalt – það er flókið starf sem krefst þekkingar, innsæis og skuldbindingar.

Þegar krísa er nýtt til að fyrir­tækja­væða menntun

Til að leysa leikskólavandann þurfum við samstillt átak ríkis og sveitarfélaga. Fyrst og fremst þarf að ganga frá kjarasamningum við leikskólakennara sem skila þeim þeirri virðingu sem starfið á skilið og tryggja réttlát laun. Við þurfum að laða leikskólakennara aftur til starfa, skapa mannúðlegar vinnuaðstæður og hvetja ungt fólk til að mennta sig í faginu.

Að þora út í óvissuna

Uppeldisfræðilegar skráningar þurfa að segja sögu. Málið snýst ekki um margar myndir, en vel valdar myndir. Hér er skráning skoðuð frá m.a. kenningum um tengslamyndun barna, sérstaklega skoða hugtakið örugg höfn.

Mitt barn, mínar reglur

Ég var ekkert að pæla sérstaklega í þeim og tók ekkert eftir að þeim færi neitt á milli, fyrr en ég heyrði hávaða smell, mamman gaf dóttir sinni svo harkalega utan undir að kinninn á barninu varð eldrauð. Mér auðvitað brá og sagði að þetta mætti hún ekki. Skiptu þér ekki af því sem kemur þér ekki við, „mitt barn mínar reglur” var svarið sem ég fékk.

Undur leiksins: Hvernig einfaldir hlutir geta getað örvað þroska

Ímyndunarafl barna, eins og sést í leik Thelmu, er ekki afþreying, heldur er undirstaða náms og þroska. Í leiknum er hún að prófa sig áfram með hvernig hlutir vinna saman, þróa hugmyndir og prófa nýjar lausnir. Með því að hafa frjálsan aðgang að fjölbreyttum efniviði, hefur hún tækifæri til að kanna, uppgötva, og læra af eigin reynslu.

Kenningarleg sjónarhorn í leikskólafræðum, Barad og ný- efnishyggja

Karen Barad um gagnvirk áhrif efnis, umhverfis og barns. Þar sem megináherslan er jarðleir, ákvað ég að taka út umfjöllun um kenningar Barad um hugtakið bylgjubogun í tenglsum við leikskólafræði. Það tengist umfjöllun um það sem hefur stundum verið nefnt ný-efnishyggja (e. new- materialism) og hefur verið nokkuð til umfjöllunar innan leikskólafræða. Hins vegar fannst mér leitt að missa út Barad og ákvað því að búa til sérstakan fyrirlestur um hvernig hægt er að tengja kenningu hennar við leikskólastarf og kannski ég tengi hann líka við ný-efnishyggjuna og hvernig hún gæti birst í leikskólastarfi.

Sumargjöf 100 ára

Í dag 11. apríl 2024 eru slétt hundrað ár síðan konur komu saman í húsakynnum Óskabarns þjóðarinnar, Eimskipafélagshúsinu til að ræða um stofuna samtaka um málefni barna þeim til velfarnaðar. Ég er að tala um Sumargjöf sem var síðan stofnað formlega í sama húsi þann 22. apríl 1924. Það vill svo til að undafarna daga […]

20 ár með 6 ára börn í grunnskólanum: Hvað hefur gerst?

Nám í gegnum leik er þeim börnum sem þola minni kyrrsetur og þurfa meiri hreyfingu mikilvægt. En öll börnin munu upplifa leik- og námstíma sem hvatningu til skólastarfsins. Hlutverkaleikurinn býður líka upp á tækifæri fyrir þá sem nú þegar geta lesið og skrifað til að þróa þá getu áfram í leik.

Læst: Einelti leikskólabarna (KD myndband fyrirlestur)

Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.

Læst: Dagur leikskólans 2024 Matur og matarmenning (myndband)

Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.

Matur og matarmenning

Skoðun á mat og matmálstímum er sennilega kannski það sterkast sem sem fylgir okkur frá uppeldinu og inn í starfið í leikskólanum. Þegar ég hef rætt um matmálstíma við starfsfólk leikskóla, heyri ég oft óm þeirra eigin minninga um hvernig matmálstímar eiga að fara fram.

Leikskólakennarar eru í starfi barnanna vegna

Í október lagði ég fyrir könnun þar sem ég spurði hvað starfsfólk leikskóla telur gefandi í starfi, hvernig það skilgreinir fyrirmyndar samstarf innan leikskóla og að lokum spurði ég um atriði sem fólk telur mest um vert að vinna að innan leikskólans. Ég sagði frá fyrstu greiningu á gögnunum á fundi Bernskunnar – Íslandsdeildar OMEP, […]

Leikskóli á tímamótum – Vellíðan og vanlíðan

Í september 2017 gerði ég könnun sem sýndi að margt hvílir á starfsfólki leikskóla, sérstaklega er snýr að mönnun og aðbúðnaði i starfi. Fram kom að álag væri tengt hávaða, fjölda barna í litlu rými, manneklu, afleysingum, skort á undirbúningstíma og fleira var tínt til. Í kjölfarið og vegna þess að Bernskan – Íslandsdeild OMEP hafði afráðið […]

Það sem veldur álagi í leikskólum

Hér er fjallað um niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir 22 – 25 september 2017 um undirbúningstíma og álagsþætti í starfi í leikskólum. Sérstaklega var spurt um óskafyrirkomulag og tímafjölda í undirbúning og svo það sem hvíldi á fólki varðandi vinnuaðstöðu og vinnutíma í leikskólum. Könnunin var gerð á Surrwey monkey og var með öllu […]

Vinnuaðstæður leikskólakennara

Þar sem ég hef skoðað leikskóla víða um heim veit ég að í flestu stöndum við okkur vel með okkar leikskóla. Við höfum metnaðarfullt fólk sem vinnur í kerfinu og oftast líka pólitíkusa. En þrátt fyrir það þarf ekki annað en flétta blöðum á hverju hausti og sjá að það er eitthvað ekki í lagi. […]

Þetta um elstu börnin í leikskólanum

Til að skilja hvernig hugmyndafræði grunnskólans togar leikskólafræðina til sín er gagnlegt að skoða umræðuna um elstu börnin í leikskólanum og hvernig hún hefur þróast. Umræðan um elstu börn leikskólans er ekki ný af nálinni. Hér áður fyrr hófu íslensk börn grunnskólagöngu 7 ára. Þó sóttu mörg börn nokkurra vikna vorskóla og önnur fóru í […]

Ráðstefna Rannung um fimm ára börnin

Ég gladdist við að hlusta á sumt í dag á ráðstefnu Rannung um fimm ára börnin.  Mér fannst gaman að hlusta á stjórana á Urðarhól og Ægisborg lýsa  starfinu og gefa dæmi um frábært leikskólastarf þar sem leiknum er treyst sem námsleið og það stutt með dæmum úr starfi.  Mér varð hinsvegar verulega ómótt þegar ég hlustaði á […]

Öll störf eru kvennastörf en skammist ykkar þið sem veljið þessi sígildu

Stundum þegar ég les að öll störf séu kvennastörf (og merkingin er að störf sem einu sinni voru talin karlastöf séu kvennastörf) og leiðin sé að brjóta upp kynbundið nám og starfsval, velti ég fyrir mér hvort ég sem hef valið mér hefðbundið kvennastarf eigi að skammast mín fyrir það val. Hvað skilaboð erum við […]

Orðsporið – Framtíðarstarfið

Forseti Íslands og aðrir gestir Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað 1924 til að mennta íslensk börn, það hét reyndar eitthvað annað á þeim tíma, forða ungum börnum frá frá soll, götulífi og vondum húsakynum, en menntun var það sannarlega sem upp á var boðið. Seinna stóð Sumargjöf, að áeggjan Þórhildar Ólafsdóttur forstöðukonu í Laufásborg sem þá […]

Myndin af Tindastól

Árið 2013 varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá Orðsporið. Í tilefni þess var ég beðin um að skrifa í Skólavörðuna. Ég ákvað að rifja upp mína eigin skólagöngu og þá sem höfðu áhrif á mig.

Fagmaður eða framlengingarsnúra!

Sem dæmi til að reka gott veitingarhús þarf margt að koma saman, það þarf hugmyndafræði, svo þarf góðan kokk, sem hefur vit á því sem hann er að gera, kann að elda, setja saman áhugaverðan matseðil, fylgja sannfæringu og vera skapandi í sínu starfi. Svo þarf hann að hafa afbragðs tímastjórn á tæru. Það þarf að hanna bæði eldhús og veitingasal þannig að það virki, að tryggt sé að flæði geti verið gott, að fólk sé ekki að flækjast fyrir hvert öðru, lýsing sé góð í eldhúsi en kannski mild í sal. Það þarf að velja hluti, borðbúnað, dúka og annað, sem er fallegt og fyrir augað en er líka endingargott.

Er leikskólinn sólkerfi, reikistjarna eða tungl? Eftirnýlenduvæðing leikskólahugmyndafræðinnar

Eftirnýlenduvæðing hugarfars er viðfangsefni sem fleiri og fleiri hafa velt upp. Eftirnýlenduvæðing felur í sér að tiltekinn hugarheimur smitar eða tekur yfir annan. Þetta getur gerst smám saman og sá sem fyrir verður er ekki endilega meðvitaður um það sem er að gerast. Má sem dæmi benda á uppgang nýfrjálshyggjunar og skilgetins afkvæmis hennar, markaðshyggjunnar […]

Sjónvarpsgláp núll til þriggja ára barna

Iðulega birtast áhugaverðar greinar í erlendum miðlum, greinar sem mér finnst alveg eiga erindi við leikskólafólk og foreldra. Stundum tek ég grein til hliðar og ætla að skrifa um hana litla færslu seinna. Þetta seinna á það til að vera nokkuð teygjanlegt hugtak hjá mér. Á meðan hleðst upp áhugavert efni. Nú í upphafi  apríl […]

Fullorðið fólk sem er vont við börn

Nú eru að koma fram fleiri og fleiri rannsóknir um yngstu börnin og starfið með þeim. Í Noregi er t.d. stórt rannsóknarverkefni í gangi þar sem aðstæður og menntun yngstu barnanna eru í kastljósinu. Meðal þess sem þar kom fram er að starfsfólk er ekki í nógu miklum tilfinningatengslum við yngstu börnin (Jonassen, 2016). Við sem höfum eitthvað kynnt okkur mál yngstu barna og eða bara sem foreldrar vitum að þau hafa mikla þörf fyrir ástúð og umönnun, þau hafa þörf fyrir að við þau sér rætt og þau snert. Rannsóknir á heilanum hafa t.d, sýnt að við þurfum öll á snertingu að halda. Heilinn þarf hana til að þrokast og dafna (Young, 2014).

Þátttökustig Arnstein í leikskólasamhengi

Árið 1969 setti Sherry Arnstein fram kenningu í stjórnmálafræði um þátttöku og skilgreiningar á henni (Arnstein, 1969). Kenning Arnstein náðu nokkurri útbreiðslu innan stjórnmálafræða og seinna vann Hart upp úr henni módel sem snéri að því að meta þátttöku barna í skólum og frístundastarfi  (þátttökustigi Hart) sem margir kannast við og nota jafnvel í starfi […]

Skólaskylda fimm ára barna?

Í mars 2014 var gefin út skýrsla sem Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu lét gera um skólamál. Hún er í röð eða hluti af stærri skýrslu sem ber heitið; Skólar og menntun í fremstu röð og þessi er nefnd Samvinna skólastiga frá leikskóla að háskóla. Í skýrslunni er stefnumótun sveitarfélaganna um samstarf þeirra á milli og það sem þau sjá sem framtíðarmúsík í skólamálum. Meðal þess […]

Leikur eða agi – verkefni eða frelsi – deild eða bekkur

Kristín Dýrfjörð skrifar Það er svo merkilegt að reglulega heyrist umræða um að skólakerfið sé ekki að standa sig, að tíma barna sé ekki vel varið  í leikskólum eða gæti alla vega verið betur varið þar. Raddir heyrast um að börnin  þurfi að takast á við meira krefjandi „akademísk“ verkefni,  það sé hægt að nota […]

Réttlæti grunnur leikskólastarfs

Í lok þessara færslu má finna í PDF skjali erindi sem ég flutti á Menntakviku 3. október 2014, hér að neðan má finna örfáa punkta úr fyrirlestrinum. Flest okkar þekkja sögur H.C Andersen við höfum lesið þær og í leikskólum eru þær víða lesnar enn. Sögur snerta okkur á annan hátt en fræðigreinar, þær setja […]


Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 43

Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 44

Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 83

Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 86

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar, sem fjallar um leikskólastarf