Kristín Dýrfjörð

Barnið sem fékk að njóta bernsku sinnar

Kristín Dýrfjörð skrifar

Nú er komið sumar og verkefnin í leikskólanum breytast, víða verður aukin áhersla á það sem gerist úti, Þetta er tími sjálfstæðis og frelsis. Tími til að kynnast og kynna náttúruna á annan hátt.

Stundum er gott að líta til baka, hugsa um það sem hefur mótað okkur og viðhorf okkar til lífsins.

Sjálf er ég barnið sem pressaði blóm og lagði mig eftir að þekkja þau með nafni, tíndi kríuegg sem mamma bakaði skærgræna jólaköku úr.

Ég er barnið sem lá út í móa, dreymandi, sem batt saman strá í hús fyrir dúkkurnar. Ég er barnið sem stalst til að nota skrúfjárnin hans pabba í parís.

Ég er barnið sem horfði upp í himininn og lét mig dagdreyma og ferðast í skýjum.

Ég er barnið sem hlustaði eftir fuglunum og reyndi að þekkja þá í sundur og muna nöfnin.

Ég er alveg viss um að þessi bernskuverkefni mín hafa alla tíð haft áhrif á mig.

Ég veit að ég man ekki endilega nöfnin á fuglum sem ég lærði fimm ára. En svo endurtók þessi lærdómur sig ár eftir ár og hin seinni ár leitast ég við að bæta við þekkingu mína. Lagt mig eftir að kynnast fuglum, steinum, jurtum, nytjum og lífsháttum þeirra sem deila með okkur þessari jörð.

Þessa áráttu mína rek ég til bernskunnar, fyrir að hafa fengið að vera barnið skammlaust sem eyðilagði slunkunýju mjallarhvítu strigaskóna í mýri upp á nöfum, sem fékk að hafa allt grjótið í herberginu sínu, sem fyllti bækur af blómum til að þurrka, sem fékk tækifæri til að búa í eigin veröld og veröld bókanna. Sem fann lyktina af sögunum sem hún las. Sem getur enn í draumum stigið upp í skýin og horft yfir jörðina og fundið frelsið í hverri frumu.

Ég var fimmtán ára þegar ég keypti mér bók um grasnytjar. Flóruna eignaðist ég um leið og ég átti fyrir henni. Ég elskaði bækur um grasafræði og geri reyndar enn.

Ég er barnið sem fékk að njóta bernsku minnar, sem fékk leyfi til að dvelja í sjálfu mér, til að kafa djúpt, til að rekja hugmyndir mínar og til að gleyma tímanum.

Nú er komið sumar í leikskólanum.

Hvernig eru þau tækifæri sem gefast til að upplifa sumarið með allar sínar gjafir nýttar? Hvernig munu börnin sem núna eru leikskólabörn líta til baka og minnast bernsku sinnar?

Muna þau tilfinningar frelsis og sjálfstæðis? Munu þau rekja fullorðinssjálfsmynd sína til minninga bernskunnar? Munu þau fagna minningunum eða gráta þær?

Grænaklauf

Ég man þegar ég lagðist í lyngið í Grænuklauf,

og sá ævintýri í himinhvolfinu.

Ég man þegar ég flaug um loftin blá
á dúnhvítum vængjum skýjanna.

Ég man frelsistilfinninguna,

og drauma bernsku minnar.

(kd, júní 2026)

Sorry, the comment form is closed at this time.

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar, sem fjallar um leikskólastarf