Kristín Dýrfjörð

Hvað er erfiðast við leik barna?

Kristín Dýrfjörð skrifar 15. nóvember 2026

Nýlega velti ég fyrir mér hvað starfsfólki leikskóla þætti skemmtilegast að gera með börnunum. Tilefnið var lítil könnun sem ég gerði árið 2020 þegar ég var að undirbúa fyrirlestur um leik barna. En í sömu könnun spurði ég  líka:

Hvað finnst þér erfiðast við leik barna?

Þegar ég skoða svörin sé ég að þau eru um margt verulega áhugaverð, ekki síst vegna þess að þau segja okkur eitthvað um hvað reynir á starfsfólk þegar börnin eru að leika sér.

Leikur er nefnilega ekki bara leikur. Þótt börn fari gjarnan leikandi létt á milli hugmynda og viðfangsefna er ekki víst að okkur fullorðna fólkinu finnist jafn auðvelt að fylgja þeim. Að halda þræðinum, fylgja hugmyndum sem taka sífelldum breytingum og átta sig á því sem er að gerast getur reynt á. Og svo er það allt hitt sem kemur upp í samskiptum barnanna.

Ágreiningur er hluti af leik.

Það vakti einmitt athygli mína hversu margir nefndu ágreining og samskipti barna. Svör eins og „Ósætti“, „Árekstrar“, „Baráttan um leikföng“ og „Að þurfa að leysa deilur milli barnanna“ komu fyrir í ýmsum myndum.

Hávaðinn

Annað sem er náttúrulegur hluti af leik er að börn eiga í samskiptum og þá myndast oft hávaði. Hann var áberandi í svörum.

Einn svaraði einfaldlega „Hávaði“, annar „Hlaup og öskur“ og sá þriðji „Hávaði í risaeðluleikjum “.

Við vitum að mörg börn elska alla vega ærslaleiki og kannski að risaeðluleikur sé þannig leikur. Leikur sem börnin fara í til að fá útrás fyrir hreyfiþörf, stíga þungt til jarðar og gefa frá sér hræðileg hljóð, fyrir að vera í eltingaleik og hvað eina. Og hvað er betra en risaeðlur sem eru ekki þekktar fyrir að fara hljóðlega um. Börn eru slungin að finna tækifæri og aðlaga leiki að eigin þörfum.

Hávaði hins vegar er raunverulegt álag. Og hann skapast þegar mörg börn eru saman í litlu rými, hljóðvistin er slæm og starfsfólkið hefur takmarkaða möguleika á að dreifa hópnum. Það þarf ekki einu sinni risaeðluleik til að hávaði skapist við slíkar aðstæður. Og við verðum að muna að hávaðinn er ekki bara slæmur fyrir starfsfólk hann er það líka fyrir börn.

Sem vekur spurningar um hvort það sem fólki finnst erfitt liggi endilega í hávaðasömum leik og hvort stundum megi ekki kenna þeim aðstæðum sem við bjóðum börnunum til leiks um.

Þegar einhver fær ekki að vera með

Önnur svör fjölluðu um börn sem eiga erfitt með að komast inn í leik, eru útilokuð eða fá ekki að hafa áhrif á framvinduna. Við vitum auðvitað að útilokun frá leik getur verið merki um einelti eða að þróun sé í þá átt.

Einn svaraði:

„Þegar börn mega vera með í leiknum en fá síðan höfnun frá leikfélögunum (rödd þeirra heyrist ekki í leiknum)“

Annar nefndi:

„Þegar sum vilja ráða þræðinum og hin fá ekki að njóta sín.“

Og enn annar:

„Þegar eitthvað barn á erfitt uppdráttar og nær ekki að tengjast öðrum.“

Þessi svör minna okkur á að sjálfsprottinn leikur er ekki sjálfkrafa lýðræðislegur eða réttlátur. Börn sem ráða ferðinni geta líka útilokað önnur börn, tekið sér vald og ákveðið hver fær að vera með og hver ekki.

Og þá reynir á fullorðna fólkið.

Við viljum virða leikinn og sjálfræði barnanna, en við berum líka ábyrgð á að öll börn hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku. Rannsóknir sýna að góð leið til þess sé að vera vakandi fyrir leik og stundum að vera þátttakandi í leik barna. Að vera þátttakandi án þess að taka yfir stjórn leiksins er vandmeðfarið en afar mikilvægt.

Síðan eru vangaveltur sem tengjast því hvenær á að grípa inn í leik og samskipti barna?

Mér fannst sérstaklega áhugavert hversu mörg svörin snerust um þessa faglegu glímu. Ekki endilega að vita ekki hvað ætti að gera, heldur að þurfa stöðugt að meta aðstæður.

Einn svaraði:

„þegar þau rífast … þá ég á erfitt með að blanda mér ekki of fljótt inn í“

Annar orðaði þetta svona: „Að styðja við þátttöku þeirra sem þurfa á því að halda án þess að grípa of mikið inn í eða stjórna leiknum og að meta hverjir þurfa stuðning hvenær“

Og svo var þetta svar:

„Þegar börnin eru að vinna úr erfiðum hlutum sem þau hafa upplifað og eru að reyna að skilja þá í gegnum leikinn. Þá er maður alltaf að reyna að aðlagast og styðja barnið. Kveikir á rökhugsuninni og maður er endalaust að velta fyrir sér ef maður er að hjálpa barninu eða hefta það.“

Mér finnst þessi svör lýsa vel því sem ég tel vera eitt af flóknari viðfangsefnum leikskólakennara. Að vera til staðar, fylgjast með, hlusta og taka ákvarðanir um hvenær nærvera okkar hjálpar og hvenær hún getur truflað.

Það er nefnilega ekki alltaf auðvelt að gera ekki neitt. Eða réttara sagt, að virðast ekki gera neitt, því það að fylgjast af athygli með leik barna er auðvitað ekki aðgerðaleysi, heldur einmitt mikilvæg athöfn.

Stundum þarf meira faglegt öryggi og dómgreind til að bíða en til að grípa inn í.

Og svo má ekki gleyma að það er líka hægt að ögra börnum, leggja til nýjar hugmyndir og hjálpa þeim að sjá aðra möguleika án þess að taka stjórnina af þeim.

Spurningin er hvenær og hvernig.

Þegar skipulagið verður erfiðast

Nokkur svör beindust ekki að börnunum sjálfum heldur að skipulagi leikskólastarfsins.

„Að þurfa að stoppa hann [leikinn] eða gera hlé á honum vegna matartíma eða annars.“

„Að þurfa að hætta leiknum vegna tímamarka og skipulags“

„Þegar þau þurfa stöðugt að brjóta upp leikinn vegna stýringar“

Þessi svör finnst mér sérstaklega umhugsunarverð. Við tölum mikið um mikilvægi leiksins, en samt er það oft leikurinn sem þarf að víkja þegar dagskipulagið kallar. Matartíminn kemur, það þarf að fara út, koma inn, taka saman eða hefja næsta verkefni. Það er oft klukkan sem stjórnar og hefur valdið.

Auðvitað þarf að vera eitthvert skipulag í leikskólum. En ég velti stundum fyrir mér hvort við séum orðin svo vön ákveðinni dagskrá að við gleymum að spyrja hvers vegna hún er eins og hún er. Ég hef verið að velta tímahugtakinu fyrir mér. Hvernig klukkan ræður, þessu ofríki hennar. Kannski þurfum við að fara að huga að því að skoða tímann alveg upp á nýtt.

Hvað af því sem við erum að gera er raunverulega nauðsynlegt og hvað eru einfaldlega hefðir?

Og hvers vegna er það svona oft leikurinn sem þarf að aðlagast skipulaginu, en ekki öfugt?

Þegar við missum tökin

Svarið hér fyrir neðan fékk mig líka til að staldra við.

„Að finnast ég missa tökin á aðstæðum, þegar börnin hafa tækifæri til að leika sér án aðkomu kennara en þau ná ekki flæði og skipta oft milli viðfangsefna“

Mér finnst þetta hreinskilið svar og ég er viss um að margir sem starfa í leikskólum tengja við það. Það þarf ekki endilega að vera samasemmerki á milli þess að skapa flæði og tækifæri og að börn nái að einbeita sér og komast í flæði leiksins. Nemar segja mér að þeim finnist mörg börn eigi erfiðara með að dunda en áður. Við höfum skapað samfélag þar sem allt þarf að breytast hratt, þar sem skjáir með hröðum skiptingum eru út um allt.

Samtímis viljum við að börnin leiki sér sjálf, finni sér viðfangsefni og sökkvi sér niður í leik. En hvað gerist þegar það gengur ekki eins og við vonuðumst til? Þegar börnin flakka á milli viðfangsefna, hávaðinn eykst og okkur finnst við missa yfirsýn?

Þá er kannski freistandi að grípa inn í og skipuleggja eitthvað.

En ég velti fyrir mér hvort við gætum stundum byrjað á að skoða aðstæðurnar. Er nægilegt rými? Er efniviðurinn áhugaverður? Hafa börnin næði? Erum við að veita þeim nægan tíma til að þróa leikinn? Höfum við hjálpað þeim að komast af stað í leik, stuðlað að því að þau geti einbeitt sér. Hvað er gert til að styðja og viðhalda leik, að þar skapist sameinuð upplifun og flæði?

Eða erum við að gera óraunhæfar kröfur um að leikurinn sé alltaf fallegur, höfum við rómantíska sýn á leik? Leikur barna er nefnilega ekki alltaf fallegur, hljóðlátur og samfelldur. Hann getur verið hávær, óreiðukenndur, brotakenndur og fullur af tilraunum sem virðast ekki leiða neitt sérstakt.

En það þýðir ekki endilega að ekkert sé að gerast.

Að kunna að vera með

Þegar ég les þessi gömlu svör finnst mér þau fyrst og fremst sýna hversu margþætt og krefjandi það er að styðja leik barna.

Það þarf að kunna að lesa í samskipti, sjá hver fær að vera með og hver stendur utan við. Það þarf að geta metið hvenær börn þurfa hjálp og hvenær þau þurfa fyrst og fremst tíma og svigrúm. Og að geta horft á eigin starfshætti og skipulag með gagnrýnum augum.

Mér finnst líka mikilvægt að við leyfum okkur að viðurkenna að leikur barna getur stundum reynt á okkur. Það gerir okkur ekki að verri leikskólakennurum. Kannski er það einmitt þegar við finnum fyrir óþægindum eða óvissu sem við höfum tilefni til að staldra við og ígrunda eigin viðbrögð.

Ég hef áður skrifað um mikilvægi þess að kunna að fylgja börnunum, að vera stundum innan hringsins þeirra og stundum utan hans.

En það er auðvitað ekki nóg að segja að við eigum að fylgja. Við þurfum líka að kunna að sjá hvenær börnin þurfa á okkur að halda.

Og kannski er það einmitt það sem gerir starf leikskólakennarans svo áhugavert. Það er engin ein uppskrift sem gildir alltaf. Leikskólakennarinn þar samt að tileinka sér vera faglega á tánum og meðvitaður um eigin áhrif.

og lítil spurning til að taka með sér á næsta deildarfund.

Þegar leikur verður erfiður eða fer úr böndunum, hvað þarf að breytast, er það leikurinn eða?

Tags: ,

Sorry, the comment form is closed at this time.

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar, sem fjallar um leikskólastarf