Sarpur Rannsóknir
Greinar KD
Hér má finna yfirlit yfir fræðigreinar og kafla sem ég hef tekið þátt í að skrifa og birta síðustu ár. Þær eru ýmist á íslensku eða ensku. Hugmyndin er að bæta framtíðar birtingum inn í færsluna.
Nýjustu greinar:
Um starfsaðstæður í leikskólum
Greinin dregur upp mynd af kerfi sem stendur á brauðfótum. Starfsskilyrði leikskólakennara eru óviðunandi og hafa áhrif á bæði gæði menntunar og velferð barna. Lausnin felst ekki í því að fjölga starfsfólki heldur í því að halda í og styðja við þá sem þegar eru í starfi – fagfólk sem er undir stöðugu álagi.
Heppin börn fá góða leikskóla – en hvað með hin?
Rannsóknin gefur mikilvæga innsýn í hvernig leikskólar geta annaðhvort stutt við þroska barna – eða hindrað hann. Hún sýnir einnig að jafnvel innan sama leikskóla getur munurinn á deildum verið mikill. Þetta undirstrikar mikilvægi stjórnunar leikskóla sem meðal annars byggist á að tryggja stöðugra nærveru fagfólks og raunverulegs svigrúms í starfi – ekki bara skipulags á pappírum. Gæði leikskóla byggjast ekki á meðaltölum heldur á raunverulegum aðstæðum barna dag frá degi.
Tashkent-yfirlýsingin og staðan á Íslandi
Tashkent-yfirlýsingin, sem samþykkt var á heimsráðstefnu UNESCO árið 2022, markar tímamót í alþjóðlegri umræðu um mikilvægi menntunar og umönnunar ungra barna (ECCE). Hún leggur áherslu á rétt barna til gæðaumönnunar og menntunar frá fæðingu til 8 ára aldurs og kallar eftir aukinni fjárfestingu, samþættri stefnumótun og alþjóðlegri samvinnu.
Hæglátt leikskólastarf = meiri vellíðan
Víða er dagskipulagið afar þétt og bútað í marga bita, börn og barnahópar fara oft á milli skipulagðra verkefna og tími til að dvelja í djúpum leik virðist jafnvel af skornum skammti. En hvað ef við stöldrum við og gefum okkur rými og tíma til að njóta dagsins í stað þess að flýta okkur?
Undirbúningstímar
Skipulagning er undirstaða alls – án hennar verður ekki fagleg starfsemi
Verkafólk tilfinninga: það sem ekki sést
Kennarar verða sífellt að stjórna og miðla eigin tilfinningum. Tilfinningar eru ekki aðeins hluti af persónulegu lífi þeirra, heldur verða þær órofa hluti af fagmennsku þeirra
Hvað hefur Félag leikskólakennara gert fyrir leikskólakennara og leikskóla?
Í greininni skoða ég hvernig félagið, frá því að það breyttist aftur í stéttarfélag árið 1988, hefur haft áhrif á þróun leikskólans og hvernig það hefur tekist á við áskoranir, sérstaklega þær sem fylgja öldu nýfrjálshyggju bæði hérlendis og erlendis og breyttum kröfum í samfélaginu til leikskólans.
Sjálfsprottinn og skapandi leikur með stafrænan efnivið í leikskólum
Niðurstöður sýna að þegar stafræn tækni er meðvitað og markvisst innleidd í leikskólaumhverfið getur hún auðgað leik barna, aukið sköpunargáfu þeirra og eflt hæfni til að leysa vandamál, án þess að draga úr gæðum sjálfsprottins leiks. Kennarar gegna lykilhlutverki í að skapa umhverfi þar sem börn fá rými til að leika sér á eigin forsendum. Greinin undirstrikar mikilvægi þess að viðhalda jafnvægi milli nýrrar tækni og hefðbundinna aðferða og gefur innsýn í hvernig hægt er að skapa námsumhverfi sem tekur tillit til tæknilegrar þróunar samtímans.
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 43
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 44
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 45
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 83
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 86
