Kristín Dýrfjörð

Um vefinn Laupur

Kristín Dýrfjörð skrifar 29.03 2026

Kristín Dýrfjörð, myndin fengin af vef HA, tilefni Vísindavaka háskólanna.

Ég heiti Kristín Dýrfjörð og er eigandi og ábyrgðarmaður þessarar síðu. Hér sameinast áhugamál mín og lífsstarf.

Ég hef starfað á vettvangi leikskóla um áratuga skeið, með yngstu börnunum og þeim elstu, sem leikskólastjóri og síðar sem kennari við Háskólann á Akureyri þar sem ég starfa enn sem dósent. Þar kenni ég fjölbreytt efni sem tengist leikskólafræðum og hef ásamt samstarfsfólki komið að þróun náms og verkefna sem tengja m.a. saman leik, listir og vísindi. Nýjasta viðfangsefni mitt er hæglátt leikskólastarf.

Fyrir utan ódrepandi áhuga á leikskólastarfi nýt ég þess að vera amma. Það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri og heldur áfram að næra áhuga minn á bernsku og þroska.

Markmið síðunnar

Þessari síðu er ætlað að vera persónulegur vettvangur minn fyrir efni sem tengist leikskólastarfi, hugmyndum og þróun þess. Allt efni er sett fram á mína ábyrgð.

Afnot af efni

Vefsíðan er hugsuð sem kennsluvefur fyrir mína nema. Öllum er frjálst að nýta efni sem birt er í mínu nafni, svo framarlega sem heimildar er getið.

Flestar myndir á síðunni hef ég tekið sjálf. Ég birti aðeins myndir með góðfúslegu leyfi þeirra sem eiga í hlut.

Nafn síðunnar

Laupur er hreiður hrafnsins, staður þar sem hann safnar því sem honum þykir áhugavert og dýrmætt.

Síðan er minn laupur. Hér safna ég því sem mér finnst glitra og gljá í leikskólastarfi og umræðu um það. Vefurinn hefur þróast með tíð og tíma og er lifandi safn hugmynda minna og sjónarhorna. Ég tek mér það leyfi að breyta færslum hvenær sem mér þóknast. Venjulega geri ég breytingar vegna þess að ég er lesblind og sé ekki villur fyrr en löngu seinna.

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við mig í gegnum netfangið dyr hjá unak.is.

Tags:

Sorry, the comment form is closed at this time.

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar, sem fjallar um leikskólastarf