Kristin Dýrfjörð

Er leikurinn í hættu?

Samtíma fræðimenn hafa margir hverjir áhyggjur af leiknum í hinni stofnanavæddu veröld samtímans. Þar sem t.d. fjölmiðlar draga upp mynd af margvíslegum hættum sem bíða barna utan öryggi heimilisins og/eða innan veggja stofnana. Afleiðingin er að frelsi barna til leiks er skert. Dæmi um þetta sá ég t.d í heimsókn í leikskóla í Bandaríkjunum árið 1994 þar sem öll rými voru risastór og glerveggir til að tryggja sjáanleika, útisvæði á stærð við frímerki. Í slíkri veröld er hugtakið traust ekki til og allir eru mögulegir gerendur ofbeldis gagnvart börnum. Veröld sem var, veröldin sem ég lék mér í er varla lengur til. Leiknum er stýrt bæði á svæði og innhaldslega og hann á að hafa uppeldisleg markmið, leikur, leiksins vegna verður hverfandi í slíkum heimi. Að viðurkenna að leikur sé ekki alltaf „fallegur“ er óþægilegt og því betra að sleppa því. Hugmyndir okkar um leikinn verða hugmyndir um fallegan og rómatískan leik.

Í leikskólum birtist þessi hræðsla okkar í að við viljum ekki hafa „blind“ svæði þangað sem eftirlit okkar nær ekki. Meira að segja hefur sumstaðar verið upp umræða um öryggismyndavélar í leikskólagarða. Hluti af þessu er hræðslan við að vera dregin til ábyrgðar ef eitthvað kemur upp á. Ef barn t.d. slasast þá vill enginn vera sá sem átt að sjá til þess að allt væri samkvæmt ýtrustu stöðlum. En á þessari þörf okkar fyrir öryggi er önnur og verri hlið, hún lítur að því að við erum í leiðnni að draga úr möguleikum barna til að þroskast, einhverstaðar heyrði ég rætt um stuld á þroskaskosti.

Í Bandaríkjunum hafa þessar áhyggjur leitt til þess að mörgum skólum er búið að afnema frímínútur (40%) eða setja þeim slík mörk að ýmsir leikir þar sem líkamleg snerting á sér stað eru bannaðir. (Alla vega eltingarleikir sem dæmi). Hugtakinu Zero tolerance er þá gjannan beitt. Það nær sem sagt ekki bara til vopnaburðar barna.

Myndin sem ég dreg hér er upp er ekki falleg, kannski er hún ekki heldur svona slæm. En henni er ætlað að fá fólk til að hugsa um margræði leiksins.

Tags: ,

Sorry, the comment form is closed at this time.

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar