Kristín Dýrfjörð

Hvernig lesið er fyrir leikskólabörn í norrænum leikskólum

Eins og í rannsókn Nönnu hér heima kom fram í sænsku rannsókninni að upplestur er níu sinnum líklegri til að vera tilviljanakenndur en skipulagður. Í rannsókn Nönnu kom fram að val á bókum væri oft mjög tilviljanakennt, iðulega gripið í næstu bók úr hillunni á leið í samverstund.

Hversvegna skiptir máli að halda bókum að yngstu börnunum?

Á meðfylgjandi mynd er um árs gömul stelpa að skoða bók af miklum áhuga. Hún bendir, snýr blaðsíðum og virðist algjörlega upptekin af verkefninu. Myndin sýnir mikilvægi þess að halda bókum að börnum frá því þau eru nokkra mánaða gömul.

Merkingabærar samræður skipta mestu fyrir málþroska barna, ný alþjóðleg rannsókn

Það sem skiptir máli er þátttaka í samtalinu. Í því samhengi má auðvitað velta fyrir sér hvort að t.d. mjög fjölmennar samverustundir bjóði upp á slíkt fyrir öll börn.

Vita leikskólakennarar ekki að þeir eru að kenna lestur?

Ég heyrði því fleygt um daginn að við leikskólakennarar höfum í gegn um tíðina ekki fattað að við kenndum börnum að lesa. Það hefði í raun þurft utanaðkomandi fræðimann til að segja okkur það og það meira segja á þessari öld. Við hefðum verið okkur alveg ómeðvituð um að við værum að leggja grunn að […]

Sögusteinar

 Á ferð minni um netið hef ég rekist á margar skemmtilegar hugmyndir til að vinna með í leikskólum og/eða heima. Ein þeirra hugmynda sem ég sé víða getið þessa daga er sögusteinar. Sögusteinar eru bara venjulegir steinar sem fólk málar einfaldar myndir á, akrýlmálning virðist gefast vel, Aðrir hafa sett klippimyndir og tau á þá. Sumstaðar […]

Að elska eða afplána lestur barnabóka

Þulur og ljóð hafa alla tíð fylgt mér í starfi.  Ég er ein þeirra sem er afar ólagviss, en að sama skapi kunni  ég helling að þulum og vísum (gæti vegna æfingarskorts hafa gleymt slatta). Ég hef líka átt gott með að koma ást minni á fyrirbærunum á framfæri við börn sem og að segja […]


Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 43

Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 44

Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 82

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar, sem fjallar um leikskólastarf