Kristin Dýrfjörð

Ljósaborð

Ljósaborð hafa lengi fylgt leikskólum. Í Reggio Emilia eru þau hluti af staðalbúnaði hverrar deildar, þau eru þar í mismunandi stærðum og formum. Ljósaborð bjóða upp á leik og vinnu með opinn efnivið. þau gefa tækifæri til þess að upplifa efnivið á nýjan og oft öðruvísi hátt. Þegar t.d. tveir mislitir gagnsæir hlutir eru lagðir á borðið sést litablöndun. Byggingar á ljósaborði öðlast nýtt líf.

Hvað er hægt að setja á ljósaborð

Á ljósaborð er hægt að nota gríðar margt, það er hægt að útbúa allt mögulegt, kaupa á ólíklegustu stöðum og svo auðvitað hlutir sem eru sérhannaðir fyrir ljóasborð. Á myndinni hér að ofan má sjá litaðar plastskálar sem keypti ég í Góða hirðinum fyrir 200 kr. saman. Með þeim nota ég í þetta sinn stækkunargler sem ég fékk  innan úr ónýtum myndvarpa. Til að ná tilætluðum áhrifum þá eru þrjár skálar undir stækkurnarglerinu en ein ofan á. Með því virðist sú sem er ofan á vera mun minni en hinar.  Áferð myndanna minnir líka frekar á vatnslitamynd en ljósmynd. Ég hef víða erlendis séð plaststækkurgler á stærð við A4 pappír sem gaman gæti verið að nota (kannski fæst slíkt hér hef bara ekki séð það). Stundum eru skemmtilegir hlutir í Megastore og Tiger sem hægt er að fá fyrir lítið svo er hægt að kaupa margt alveg frábært í Barnasmiðjunni. Það er ágæts byrjun að að safna og endurnýta hluti eins og lokin af skyr.is dollunum, litaðar plastumbúðir og fleira. Hægt er að útbúa flöskur með lituðu vatni – geli – barnaolíu og lit, ágætt að nota límbyssu og líma tappa fasta. Glerperlur, speglar til að breyta afstöðu hluta og margfalda. Fínt salt með lit eða sandur á bakka ofan á ljósaborð.

Tags: , , , ,

Sorry, the comment form is closed at this time.

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar