Kristin Dýrfjörð

Sit upp á hól og góni

DSC01140Ég sit upp á góðum hól með nokkur gleraugunasett mér við hlið og horfi yfir vettvang leikskólans. Ég er í önnum við að máta  þessi gleraugu.

Kynjagleraugu

Stundum set ég upp kynjagleraugun, stundum set ég upp frjálshyggjugleraugun, stundum er það gleraugun sem hjálpa mér að greina  hina félagslegu orðræðu sem ég set upp. Yfirleitt reyni ég að nýta lýðrræðisgleraugun, helst að sitja á hólnum þar sem jarðvegurinn er gegnsýrður lýðræði.

Blindaðir blettir

Stundum finnst mér þessi seta erfið og ég sé ekki alveg það sem er fyrir framan mig. Jafnvel þó gleraugun séu með ágætan styrk. Stundum blasa hlutir við og ég skil ekki af hverju allir aðrir sjá þá ekki. Svo er þetta með blindu blettina. Þeir eru auðvitað vandamál, jafnvel þó ég reyni að snúa mér í allar áttir og ná sem mestu inn í sjónarsviðið. Það verða alltaf blindir blettir, þverstæður sem þarf að takast á við. Það er líka ákveðin hætta sem fylgir svona hólasetu, meðal annars hætta sem byggir á að horfa í allar áttir með endalaust ný gleraugu og ná ekki fókus.

Kjarval
DSC01139Stundum þegar mér líður akkúrat þannig, þá er verður mér hugsað til Kjarval

sem sagðist gjarnan mála sama mótívið aftur og aftur, í mismunandi veðri eða frá öðru sjónarhorni. Auðvitað felst galdurinn í að horfa og hugsa, endurhugsa og skilgreina og stundum að færa sig á nýjan hól.

_______________________________

ps. og ef myndirnar sem fylgja færslunni er skoðaðar sést að sjónarhornið breytir upplifun og sýn.

Birtist fyrst á blogginu mínu roggur.is

 

Sorry, the comment form is closed at this time.

Kristín Dýrfjörð er eigandi og ábyrgðarmaður síðunnar