Hversvegna þessi eilífa áhersla á leikinn?
Að prófa sig áfram og gera tilraunir í gegn um leik er á undanhaldi í mörgum bandarískum leikskólum. Ástæðan er þrýstingur í átt til læsis, að börn eigi að vera læs þegar þau fara úr leikskólanum. Þrýstingurinn leiðir til þess að fjöldi kennara eyða meiri og meiri tíma í að kenna börnum lestur og og […]
Sköpun og leikur
Í grein eftir Ólaf Pál Jónsson heimspeking sem birtist í tímaritinu Hugur, tekst hann á við spurningu um hvað leikur og skapandi starf eigi sameiginlegt. Hann hefur grein sína á að vísa í algengar tilvísanir um að annað sé forsenda hins en bendir líka á að fáir reyni að svara hver þessi forsenda sé. Í […]
Vísindasmiðja með þátttöku barna
Ég er svo heppin að fá að kenna og hafa umsjón með námskeiði sem er tenging á milli nokkurra greina. Námskeiðið heitir vísindasmiðja og var upprunalega hugsmíð okkar nokkurra kennara við leikskólabrautina við Háskólann á Akureyri. Reyndar er námskeiðið síbreytilegt og stundum kenna í því börn og starfsfólk leikskóla, starfandi fjöllistakona á Akureyri og prófessor […]
Maria Montessori
Maria Montessori (1870 -1952) er ein af rissessunum í uppeldisfræðinni. Hún var ítölsk fædd 1870, fyrsta konan þar í landi til að ljúka prófi í læknisfræði (1896). Hún sinnti læknisstörfum m.a. á svonefndum “fávitaheimilum” fyrir börn. Þar veitti hún því eftirtekt að börn sem fengu einhverskonar minnstu örvun, vegnaði betur en öðrum börnum. Hún komst […]
Prestolee
Í Bretlandi rétt um fyrri heimstyrjöldina átti sér stað stórmerkileg tilraun í skólamálum. Hér má sjá stutt myndband frá skólanum Prestolee. Ég held að við getum lært margt af því sem þarna kemur fram. Jafnframt má finna hér slóð á afar áhugaverða bók sem skrifuð var um skólastjórann, hún heitir The idiot teacher http://vimeo.com/21920651
Er leikurinn í hættu?
Samtíma fræðimenn hafa margir hverjir áhyggjur af leiknum í hinni stofnanavæddu veröld samtímans. Þar sem t.d. fjölmiðlar draga upp mynd af margvíslegum hættum sem bíða barna utan öryggi heimilisins og/eða innan veggja stofnana. Afleiðingin er að frelsi barna til leiks er skert. Dæmi um þetta sá ég t.d í heimsókn í leikskóla í Bandaríkjunum árið […]
Könnunarleikur
Í mörgum leikskólum þar sem yngstu samborgararnir (1-2ja ára) dvelja er könnunarleikurinn vinsæl aðferð yngstu barnanna til að rannsaka umhverfi sitt. Könnunarleikurinn er ákveðin aðferð við leik sem byggist á rannsóknarþörf barna. Undirstaða rannsókna þeirra er auðvitað fyrst og fremst þeirra eigin forvitni og skynjun, en umhverfið er líka skipulagt á tiltekinn hátt. Þannig að […]
Byggingaleikir stelpna og stráka
Kristín Dýrfjörð skrifaði 2007 Til er alveg frábær sænsk bók um byggingarleiki í leikskólum (Bygg og konstruktion i förskolan). Bókin er eftir leikskólakennara, hana Miu Mylesand sem starfar á Trollet í Kalmar. Mia kom hingað fyrir nokkrum árum og hélt erindi um efnið á vegum Háskólans á Akureyri. Bókin fjallar að hluta um það þegar […]
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 43
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 44
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 45
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 83
Warning: Trying to access array offset on false in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 86
