Sarpur apríl, 2012
Líðan og velferð barna

Með samþykki og útbreiðslu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna tók fólk að endurskoða hug sinn til barna og bernskunnar. Það fór að bera á umræðu um mikilvægi þess að sjá og viðurkenna að börn eru þátttakendur, þau hafa mótandi áhrif á sitt nánasta umhverfi, heimili og skóla. Í skrifum varð æ algengara að sjá á orðtök eins og félagsfræði bernskunnar, barnið […]
Lýðræðisuppeldi og agi og örlítið tengt núvitund

Kristín Dýrfjörð, apríl 2014 Á Íslandi hefur umræða um aga og agavandmál verið vinsæl hjá hverjum samtíma. Þegar horft er til baka virðist sem sömu álitamálin og jafnvel lausnir komi fram aftur og aftur. Börnin eru óhlýðin og fyrtin og öllu siðferði virðist fara aftur. Hver kynslóð telur að sú sem á eftir kemur sé agalausari og […]
Samtöl við foreldra (þróunarsamtöl)

Ég las fyrir nokkru grein eftir Ann-Marie Markström um foreldrasamtöl í sænskum leikskólum – reyndar kalla Svíarnir samtölin þróunarsamtöl. Marmið þeirra er yfirleitt að greina foreldrum frá þróun og þroska barnanna og segja frá lífi þeirra í leikskólanum og auðvitað að fá fréttir af barninu heima. Í greininni er farið yfir sviðið um hvernig þessum samtölum […]
Ef þú vilt drepa frumkvæði, verðlaunaðu það. Getur verið neikvætt að hrósa/verðlauna börn?
Sumarið 2000 var haldin hér á landi merkileg ráðstefna um Öfga öfganna,um áhrif flóða á umhverfið, einn fyrirlesarinn var prófessor Victor R. Baker frá Arizona í Bandaríkjunum en hann ræddi um flóð á plánetunni Mars. Með honum í för var kona hans Pauline Baker sem þá hafði nýlega sigrast á krabba og var ferðin hingað hennar eigin […]
Vinátta barna

Flest börn eiga vini, flest eiga þau sér vini af sama kyni og á svipuðum aldri, en ekki öll, sum börn eiga vini af hinu kyninu og sum börn eiga ekki vini. Sum börn í leikskólum eru einmana. Það er áhyggjuefni. Þetta kom fram í afar áhugaverðum fyrirlestri Fannýjar Jónsdóttur í KHÍ þann 23 apríl 2008. Umfjölunnin […]
Elstu börnin í leikskólanum

Frá Bandaríkjunum hafa verið að berast fréttir um bylgju sem hefur riðið hefur yfir skóla þar undanfarin ár. Bylgjan felst í að halda börnum sem fædd eru seinni hluta ársins ári lengur í leikskólum (redshirting). Markmiðið er að bæta samkeppnistöðu barnanna í framtíðinni. Samkvæmt því sem kemur fram í rannsóknum í Bandaríkjunum er líklegra að […]
Mótandi áhrif málsins

Innan leikskólafræðanna hefur fólk verið upptekið af mótun starfsins í gegnum málið. Það var ekki að ástæðulausu að leikskólakennarar lögðust eftir því að fá bæði starfsheiti sínu og samnefnara fyrir vinnustaðinn breytt. Þegar menntun leikskólakennara hófst hér 1946 varð fóstruheitið fyrir valinu, en það hafði áður verið notað um þær stúlkur sem unnu við smábarnauppeldi. […]
Lýðræði í leikskólum í anda hugmynda John Dewey
Erindi haldið í tilefni 10 ára afmæli leikskólabrautar Háskólans á Akureyri þann 27. október 2006 á Akureyri. Maðurinn John Dewey Er hægt að svara því? Er hægt að segja hver einhver er eða var? Sennilega ekki en það er hægt að segja frá stórum dráttum í lífi hans og hluta af þeim hugmyndum sem hann […]
Leikskólinn og kirkjan
Forsjárhyggja leikskólakennara í trúmálum Erindi flutt á safnaðarheimili Akureyrarkirkju þann 8. mars 2008 Í upphaf erindis um skóla og trúmál er ekki úr vegi að minna á að í dag er 8. mars alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Þennan dag árið 1910 lagði Clara Zetkin þýsk kvenréttindakona fram tillögu að því að tileinka einn dag á ári […]
Slóð á Reggio Emilia
Hér má finna ýmislegt sem tengist leikskólastarfi í anda Reggio Emilia. Athugið að neðst á stiku á forsíðu má finna flýtihnapp á sömu síðu.
list og list – að byggja ofan á þekkingu

Á meðal þekktustu nútímalistamanna er svissneska tvíeykið Peter Fischli og David Weiss. Eitt frægasta verk þeirra hefur verið nefnt á íslensku; Rás hlutanna (Der Lauf der Dinge), en í því setja þeir upp risastórt verk sem byggist á orsakasamhengi, hvernig eitt atvik rekur annað, hvernig keðjuverkan virkar í raun og alls óskyldir hlutir eru tengdir órofaböndum þegar að er gáð. Í […]
Sophie Calle ljósmyndun og persónurýmið

Vorið 2011 voru sýndir heimildaþættir á RÚV um samtímaljósmyndara. Einn þeirra er franskonan Sophie Calle. Það sem einkennir list hennar er að hún beitir myndavélinni og sjálfri sér eins og rannsóknartæki. Verk hennar eru yfirleitt ferilverk, ljósmyndir og texti sem vinna saman. Hún velur sér hugmynd eða concept og fylgir því alla leið, svona eins og við sem […]
Hversvegna þessi eilífa áhersla á leikinn?

Að prófa sig áfram og gera tilraunir í gegn um leik er á undanhaldi í mörgum bandarískum leikskólum. Ástæðan er þrýstingur í átt til læsis, að börn eigi að vera læs þegar þau fara úr leikskólanum. Þrýstingurinn leiðir til þess að fjöldi kennara eyða meiri og meiri tíma í að kenna börnum lestur og og […]
Sköpun og leikur

Í grein eftir Ólaf Pál Jónsson heimspeking sem birtist í tímaritinu Hugur, tekst hann á við spurningu um hvað leikur og skapandi starf eigi sameiginlegt. Hann hefur grein sína á að vísa í algengar tilvísanir um að annað sé forsenda hins en bendir líka á að fáir reyni að svara hver þessi forsenda sé. Í […]
Vísindasmiðja með þátttöku barna

Ég er svo heppin að fá að kenna og hafa umsjón með námskeiði sem er tenging á milli nokkurra greina. Námskeiðið heitir vísindasmiðja og var upprunalega hugsmíð okkar nokkurra kennara við leikskólabrautina við Háskólann á Akureyri. Reyndar er námskeiðið síbreytilegt og stundum kenna í því börn og starfsfólk leikskóla, starfandi fjöllistakona á Akureyri og prófessor […]
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 43
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 44
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 45
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 83
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 86